fáðu faglega ráðgjöf Þegar samskipti, líðan eða starfsmannamál verða flókin

HumanAtWork styður stjórnendur og mannauðsfólk við að takast á við áskoranir í vinnuumhverfinu og byggja upp menningu sem styður traust, helgun í starfi og árangur.

Með ráðgjöf, fræðslu og sálfræðilegri sérþekkingu hjálpa ég vinnustöðum að takast á við krefjandi samskipta- og starfsmannamál á faglegan og uppbyggilegan hátt.

Sérhæfing í vinnustaðamenningu

Fagleg ráðgjöf byggð á þekkingu og reynslu úr vinnusálfræði

Mikil reynsla af vinnu með stjórnendum

Um það bil tveggja áratuga reynsla af ráðgjöf til stjórnenda og mannauðsfólks

Fagleg meðferð viðkvæmra mála

Víðtæk reynsla af málum sem tengjast samskiptavanda, ágreiningi og EKKO málum

Áhersla á raunverulegar lausnir

Markmiðið er ekki aðeins greining heldur stuðningur við að finna leiðir áfram

Þjónusta HumanAtWork

Hvað aðstoðum við vinnustaði við?

Krefjandi samskipti og ágreining í teymum

Streitu og álag í vinnuumhverfinu

Erfið starfsmannasamtöl

Mál sem tengjast EKKO (einelti, kynferðisleg og kynbundin áreitni og ofbeldi)

Sálfélagslegt vinnuumhverfi og áhættumat

viltu ræða aðstæður á þínum vinnustað?

Hvort sem um er að ræða samskiptavanda, ágreining eða krefjandi starfsmannamál getur verið gagnlegt að fá utanaðkomandi faglega ráðgjöf.

Hafðu samband til að ræða stöðuna og mögulegar leiðir áfram

Smelltu hér til að bóka samtal

um humanatwork

Hildur Jóna Bergþórsdóttir (Morgunblaðið/Árni Sæberg)

HumanAtWork var stofnað með það að markmiði að styðja vinnustaði við að byggja upp heilbrigða vinnustaðamenningu þar sem skýr samskipti, traust og fagleg stjórnun styðja við árangur og helgun í starfi.

Að baki fyrirtækinu stendur Hildur Jóna Bergþórsdóttir, sálfræðingur með um tuttugu ára reynslu af vinnu með stjórnendum, mannauðsfólki og vinnustöðum.

Í starfi sínu hefur hún meða annars:

  • ráðlagt stjójrnendum í krefjandi starfsmannamálum
  • unnið með vinnustöðum að samskiptum og teymisvinnu
  • komið að meðferð mála sem tengjast EKKO (einelti, kynferðisleg og kynbundin áreitni og ofbeldi)
  • stutt vinnustaði við að greina og bæta sálfélagslegt vinnuumhverfi

Nálgun HumanAtWork byggir á gagnreyndri þekkingu úr vinnusálfræði og markmiðið er alltaf að styðja stjórnendur í að takast á við mannauðsmál á faglegan og uppbyggilegan hátt.

Skrá mig á póstlista